Tæknifræðingur á Eskifirði
Tæknimaður á starfstöð Hamars á Eskifirði
Hamar ehf óskar eftir tæknimanni með góða þekkingu á sviði málmiðnaðar til að styðja við rekstur starfsstöðvar Hamars á Eskifirði og þjónusta viðskiptavini Hamars á svæðinu auk þess að sinna öðrum verkefnum á tæknisviði fyrirtækisins.
Helstu verkefni:
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini Hamars á Austurlandi
- Heimsóknir til viðskiptavina
- Verkefni á tæknisviði, s.s. hönnunar-, tækni- og teiknivinna
- Tilboðsgerð, eftirlit með verkefnum og verkefnastýring
- Uppbygging og viðhald viðskiptasambanda
Menntunar og hæfniskröfur:
- Véltæknifræði, véliðnfræði- eða verkfræðimenntun.
- Góð reynsla og þekking á faginu nauðsynleg
- Iðnmenntun er mikill kostur
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Öguð vinnubrögð og gott skipulag
- Góð þekking á MS Office (Excel, Word og jafnvel MS project)
- Góð þekking á notkun AutoDesk teikni- og hönnunarforrita
- Gott vald á ensku, bæði töluðu og rituðu máli er mikill kostur
Um er að ræða fullt starf
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir:
Valgeir Torfason, [email protected]
Sæktu um á Alfred.is.