Tæknifólk á Austurlandi

Viltu vinna á skemmtilegum vinnustað?

Vegna aukinna verkefna leitum við að liðsauka í okkar frábæra tækniteymi á Austurlandi. Lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar, framúrskarandi þjónustu, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.

Ef þú…

  • Hefur brennandi áhuga á tækninýjungum og góða almenna tækniþekkingu
  • Sýnir frumkvæði í starfi og metnað til að takast á við krefjandi verkefni
  • Býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Ert með sveinspróf í rafvirkjun eða rafeindavirkjun er kostur
  • Hefur gott vald á talaðri og skrifaðri íslensku

…þá gætum við verið að leita af þér

Starfið felur í sér fjölbreytta tækni- og eftirlitsþjónustu á öryggis- og brunaviðvörunarkerfum, ásamt uppsetningum og forritun á aðgangstýrikerfum, myndavélum og eftirlitsbúnaði.

Í boði er fullt starf og er vinnut´minn frá kl. 8:00 – 16:00 virka daga. Störfin henta öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini.

Umsóknarfrestur er til og með 22. maí nk. og skulu umsóknir sendar inn á www.securitas.is.

Nánari upplýsingar veitir Sveinn Gunnar Guðmundsson, verkefnastjóri á Austurlandi, í síma 580 7000.

Securitas er leiðandi fyrirtæki á öryggismarkaði en samstilltur og góður hópur starfsfólks kappkostar við það að veita framúrskarandi þjónustu með það að markmiði að auka öryggi okkar viðskiptavina.