Sviðsstjóri á starfsstöð HD á Eskifirði

HD ehf. óskar eftir sviðsstjóra með góða þekkingu á sviði málmiðnaðar og verkstjórn til að leiða rekstur starfsstöðvar HD á Eskifirði og þjónusta viðskiptavini HD á svæðinu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sviðsstjóri heyrir beint undir forstjóra HD og sér um daglegan rekstur svo sem samskipti við viðskiptavini og birgja. Sviðsstjóri heldur utan um starfsfólk, reikningagerð og ber ábyrgð á eftirliti og viðhaldi véla á staðnum. Sviðsstjóri tekur virkan þátt í uppbyggingu og stefnumótun HD og er þar með eitt af andlitum fyrirtækisins útá við.

Nánari upplýsingar veitir Forstjóri, Árni Gíslason [email protected]

Menntunar- og hæfniskröfur

Fagréttindi í iðngreininni kostur.

Reynsla af rekstri, viðhaldi og ráðgjöf á sviði vélbúnaðar.

Haldgóða þekkingu á tölvum, svo sem excel, word.

Frumkvæði og samskiptahæfni.

Góð íslensku- og enskukunnátta kostur.

Fríðindi í starfi

Líkamsræktarstyrkur

Matur í hádeginu

Secret Link