Svæðisfulltrúi Rauða krossins á Austurlandi
Rauði krossinn á Íslandi auglýsir laust til umsóknar starf svæðisfulltrúa á Austurlandi. Um 100% stöðu er að ræða.
Helstu verkefni:
• Stuðningur við verkefni deilda Rauða krossins á Austurlandi.
• Þátttaka í móttöku og aðlögun flóttamanna á Austurlandi.
• Þátttaka í félags- og hjálparstarfi Rauða krossins á landsvísu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón B Birgisson sviðsstjóri innanlandssviðs Rauða krossins, [email protected]. Umsókn ásamt ferilskrá sendist á [email protected] fyrir 3. apríl.