Sumarvinna – Flokksstjórar í Vinnuskóla Fljótsdalshéraðs

Vinnuskóli Fljótsdalshéraðs auglýsir eftir flokksstjórum.
Leitað er að einstaklingum sem:
• Gefa leyfi fyrir að upplýsinga um þá sé aflað úr sakaskrá, sbr. 3.-4. mgr. 10. gr. laga nr.70/2007 og
uppfylla þau skilyrði sem koma fram í 2. mgr. 10. gr. sömu laga.
• Hafa góða færni í samskiptum og hæfni til að stýra hópi af ungu fólki.
• Hafa reynslu af, og áhuga á, að vinna með og fræða ungt fólk.
• Eru nemendum fyrirmynd hvað varðar heilbrigðan lífsstíl, stundvísi og tillitssemi.
• Eru sjálfstæðir, skipulagðir og sýna frumkvæði í starfi.
• Hafa bílpróf (ekki skilyrði).

Starf flokksstjóra felst í að stjórna starfi hóps nemenda vinnuskólans, leiðbeina nemendum og
fræða þá um rétt vinnubrögð og verkþætti í starfinu, halda skýrslu um mætingar og ástundun
nemenda og vinna markvisst að því að efla liðsheild og góða líðan nemenda í vinnuskólanum.
Nánari upplýsingar veitir Freyr í síma 4 700 700 og á [email protected].
Umsóknareyðublöð eru á vefsíðunni www.fljotsdalsherad.is. Umsóknum skal skila á skrifstofu
Fljótsdalshéraðs, Lyngási 12 eða á netfangið [email protected].
Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2020. Verkefnastjóri umhverfismála