Sumarstörf í framkvæmda- og þjónustumiðstöð Fjarðabyggðar

Sumarstörf í framkvæmda- og þjónustumiðstöð

Áhaldahús Fjarðabyggðar auglýsa laust til umsóknar örfá sumarsörf. Störfin felast í hinum ýmsu störfum sem tengjast þjónustu- og framkvæmdamiðstöð Fjarðabyggðar s.s. viðhald gatna, veitum Fjarðabyggðar og höfnum.

Sumarstörfin eru ætluð ungu fólki 20 ára og eldra. Umsækjendur þurfa að vera stundvísir, samviskusamir, búa yfir almennri kurteisi og hæfni í samskiptum. Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni eru miklir kostir.

Hæfniskröfur:

  • 20 ára og eldri
  • Bílpróf
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Rík Þjónustulund

Helstu verkefni:

  • Starf við hin ýmsu störf tengdum þjónustu- og framkvæmdamiðstöð.
  • Viðhald gatna.
  • Viðhald göngubrúa.
  • Verkefni tengd bæjarhátíðum, þjónusta við íbúa.
  • Verkefni tengd veitum Fjarðabyggðar.
  • Verkefni tengd höfnum Fjarðabyggðar.

Starfslýsing – verkamaður II.pdf

Nánari upplýsingar um störfin veitir Ari Sigursteinsson, bæjarverkstjóri Fjarðabyggðar [email protected] eða í síma 470 9000.

Umsóknarfrestur er til og með 17. maí nk. 

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér