Sumarstarfsmenn í sláttugengi
Sveitarfélagið Múlaþing auglýsir eftir starfsmönnum í sláttugengi sumarið 2021 á starfstöðvar sveitarfélagsins á Djúpavogi, Egilsstöðum/Fellabæ og Seyðisfirði.
Um er að ræða störf frá 25. maí til 20. ágúst.
Sláttugengi sveitarfélagsins sjá um orfaslátt m.a. á opnum svæðum sveitarfélagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Orfa- og vélsláttur á opnum svæðum sveitarfélagsins
- Orfa- og vélsláttur á skóla- og leikskólalóðum sveitarfélagsins
- Orfa- og vélsláttur á öðrum svæðum sem sveitarfélagið sinnir
Menntunar- og hæfniskröfur
- Færni til og áhugi á að slá með sláttuorfi
- Áhugi á að halda sveitarfélaginu snyrtilegu
- Frumkvæði og sjálfstæði
- Skipulögð og öguð vinnubrögð
- Metnaður og dugnaður
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Jákvætt viðmót
- Samstarfshæfni