Sumarstarf við þjónustumiðstöð og höfn á Borgarfirði Eystri

Þjónustumiðstöðin Borgarfirði eystri leitar að starfskrafti í 100% starf frá 1. maí til 15. september.

Starfið er fjölbreytt og er leitað að öflugum og drífandi einstaklingi. Næsti yfirmaður er verkstjóri þjónustumiðstöðvar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vigtun sjávarfangs skv. lögum og skil á skýrslum því tengdu.
  • Sorphirða, umhirða opinna svæða, viðhald eigna og önnur tilfallandi störf í þjónustumiðstöð í samráði við verkstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Viðkomandi þarf annað hvort að hafa réttindi sem löggiltur vigtarmaður eða vera reiðubúinn til að fara á námskeið til öflunar slíkra réttinda.
  • Bílpróf
  • Mikil samskipta- og samstarfshæfni.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Frumkvæði, sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
  • Rík þjónustulund og góð framkoma.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
Secret Link