Sumarafleysing í Stólpa – Egilsstaðir

Starfsmaður óskast í sumarafleysingar í Stólpa sem er hæfing/iðja fyrir fatlað
fólk, tímabilin 1.06.-19.07´19 og 6.08-16.08.´19. Vinnutími er kl. 9-16 virka
daga. Stólpi verður lokaður í 2 vikur 22.07-6.08 á þeim tíma er möguleiki á
afleysingarstarfi á heimilum fatlaðs fólks með sama vinnutíma.

Hæfniskröfur:
Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum
Rík þjónustulund
Íslenskukunnátta

Kostur að vera með ökuréttindi.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Anna Sigríður s. 471 1090 netfang: [email protected].
Umsóknarfrestur er til 3. mars 2019.
Athugið að þjónustustofnanir Fljótsdalshéraðs eru reyklausar.