Stuðningsfulltrúi við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa við skólann. Við leitum að stuðningsfulltrúa með starfshæfni á yngsta stigi, miðstigi og elstastigi. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg.

Í skólanum er rúmlega 100 börn í 1.-10.bekk. Kennt er í anda Byrjendalæsis og á yngsta stigi og áhersla á fjölbreytta kennsluhætti. Leitað er að stuðningsfulltrúa sem eru reiðubúnir til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.

Fáskrúðsfjörður er einn af byggðarkjörnum Fjarðabyggðar. Það er góður leik- og Grunnskóli og ríkir gott samstarf þar á milli. Í Fjarðabyggð er öflugt íþrótta- og tómstundastarf og ókeypis samgöngur innan Fjarðabyggðar. Stutt er í ósnorta náttúru sem og fjölbreytta afþreyingamöguleika. Á Fáskrúðsfirði er eina inni sundlaug Fjarðabyggðar.

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Aðstoðar nemendur og reynir að ýta undir færni og sjálfstæði þeirra.

·         Vinnur eftir áætlun sem útbúin hefur verið í samráði kennara, deildarstjóra sérkennslu og annarra ráðgjafa.

·       Gæsla nemenda í forföllum kennara.

·       Situr fag-, teymis- og foreldrafundi eftir því sem við á.

·       Þátttaka í starfi grunnskóla í samráði og að óskum skólastjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Menntun sem nýtist í starfi.

·       Ábyrgð í starfi og stundvís

·       Sjálfstæði í vinnubrögðum.

·       Samskipta- og samstarfshæfni

·       Skipulagshæfileikar

Secret Link