Stöðvarstjóri Egilsstaðir

N1 óskar eftir að ráða kraftmikinn og drífandi stöðvarstjóra á þjónustustöð félagsins á Egilsstöðum.

Um er að ræða fjölbreytt starf í líflegu umhverfi sem krefst frumkvæðis og metnaðar.

Helstu verkefni:

  • Daglegur rekstur verslunar
  • Verk- og starfsmannastjórnun
  • Önnur tilfallandi störf í versluninni

Hæfniskröfur:

  • Menntun á sviði verslunarstjórnunar eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af sambærilegu starfi
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Frumkvæði og árangursdrifni
  • Samskiptafærni og jákvætt viðhorf
  • Leiðtogahæfileikar

Fríðindi í starfi:

  • Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, ELKO og Lyfju
  • Aðgangur að Velferðarþjónustu N1
  • Styrkur til heilsueflingar
Secret Link