Starfsmenn í búsetuþjónustu á Reyðarfirði
Um er að ræða þjónustu í vaktavinnu á heimilum fatlaðs fólks.
Starfshlutfall eftir samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Hæfniskröfur:
· Áhugi á málefnum fatlaðs fólks.
· Þjónustulund og jákvæðni í starfi.
· Hæfni í mannlegum samskiptum.
· Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi.
· Mikilvægt er að starfsmenn tali og skilji íslensku.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður búsetuþjónustu,
Anna H. Árnadóttir – [email protected]
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Sótt er um starfið á ráðningarvef sveitarfélagsins – https://starf.fjardabyggd.is/storf/