Starfsmaður við íþróttamiðstöðina á Reyðarfirði
Laus er til umsóknar 100% staða starfsmanns við Íþróttamiðstöð Reyðarfjarðar. Þar sem starfið felur í sér baðvörslu í kvennaklefa er auglýst eftir kvenkynsstarfsmanni. Um er að ræða framtíðarstarf í vaktavinnu.
Í starfinu felst m.a.:
• Eftirlit og gæsla með gestum íþróttahús, Fjarðabyggðarhallar og líkamsræktarstöðvar.
• Eftirlit og gæsla með sundgestum.
• Aðstoð við skólabörn, fyrir og eftir sund- og leikfimikennslu.
• Afgreiðsla og önnur þjónusta við börn og aðra gesti.
• Þrif.
Hæfniskröfur: Reynsla af þjónustustörfum er æskileg. Sjálfstæði í vinnubrögðum. Frumkvæði og skipulagshæfni. Hæfni í mannlegum samskiptum.
Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Frekari upplýsingar um starfið gefur Paulius Naucius, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar í síma 849 1160 og í gegnum netfangið [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 21. nóvember 2019.