Starfsmaður í Tæknideild HSA – Aðsetur í Fjarðabyggð
Heilbrigðisstofnun Austurlands auglýsir lausa stöðu við Tæknideild HSA með aðsetur í Fjarðabyggð. Um er að ræða þjónustu við Umdæmissjúkrahús Austurlands í Neskaupstað, heilsugæsluna í Fjarðabyggð og hjúkrunarheimilin í Fjarðabyggð. Um er að ræða 100% starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfsmaður sinnir viðhaldi á eignum og tækjum HSA í Fjarðabyggð og annars staðar í stofnuninni eftir þörfum. Jafnframt sinnir hann öðrum verkum sem til falla í daglegum rekstri HSA. Starfið er laust nú þegar og staðan veitist skv. nánara samkomulagi.
Hæfniskröfur
Iðnmenntun er æskileg. Viðkomandi þarf að vera laghentur, samviskusamur, geta unnið sjálfstætt, haft frumkvæði í störfum og haft góða samskiptahæfni. Almenn ökuréttindi eru skilyrði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.10.2021
Nánari upplýsingar veitir
Borghildur F. Kristjánsdóttir – [email protected] – 470-1482
Kjartan Ólafur Einarsson – [email protected] – 892-3090