Starfsmaður í dagþjónustu og í eldhúsi
Um er að ræða 80% framtíðarstarf í Hlymsdölum á Egilsstöðum. Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Markmið starfsins er að veita notandum í dagþjónustu, félagslegan og persónulegan stuðning auk eldhússtarfa.
Félagsmiðstöðin Hlymsdalir er til húsa við Miðvang 6, Egilsstöðum. Í Hlymsdölum er starfrækt félagsstarf fyrir eldri borgara skv. lögum um málefni aldraðra.
Næsti yfirmaður er forstöðumaður Hlymsdala.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita dagþjónustunotendum félagslegan og persónulegan stuðning
- Þrif í eldhúsi
- Undirbúningur og bakstur fyrir kaffisölu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Þekking á málaflokki aldraðra er kostur
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, hæfileiki til samvinnu, sveigjanleika og tillitssemi
- Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Þekking og reynsla sem nýtist í starfi er kostur
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.
Nánari upplýsigar veitir forstöðumaður Hlymsdala Múlaþings, sími 470 0796 eða [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 22. september 2022 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Starfsmaður í dagþjónustu og í eldhúsi | Hlymsdalir Egilsstöðum | Hlutastarf Egilsstaðir | Alfreð (alfred.is)
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningarbréf.
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Vinnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir