Starf við félagsmiðstöðina Nýung og Vegahúsið ungmennahús Egilsstöðum

Laust er til umsóknar starf við félagsmiðstöðina Nýung og
Vegahúsið ungmennahús. Um 30-50% starf er að ræða.
Um er að ræða starf með unglingum og ungmennum og felst m.a. í viðburðastjórnun,
skipulagningu, viðveru, stjórn hópastarfs og fleiru sem til fellur.
Gerum kröfu um hreint sakavottorð, áhuga, jákvæðni, hugmyndaauðgi, frumkvæði og
samskiptahæfileika.

Reynsla af vinnu með ungu fólki kostur.
Laun greiðast samkvæmt kjarasamningum FOSA.
Æskilegt að viðkomandi geti byrjað sem fyrst.
Umsóknarfrestur til og með 31. október 2019.

Umsóknir berast Félagsmiðstöðinni Nýung eða á netfangið [email protected].
Nánari upplýsingar í síma 8660263 eða hjá [email protected]