Starf á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð auglýsir laust til umsóknar starf þjónustufulltrúa á
bæjarskrifstofunni Reyðarfirði. Um er að ræða tímabundið fullt starf til loka desember 2019 með möguleika á framtíðarráðningu.
Starfið gegnir þýðingarmiklu hlutverki í að veita íbúum góða og skilvirka þjónustu. Rík áhersla er lögð á gott viðmót og þjónustulund. Allar frekari upplýsingar veitir Gunnar Jónsson, bæjarritari, í síma 470 9062 eða á netfanginu [email protected].
Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst 2019 og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf strax.
Nánari upplýsingar um helstu verkefni og hæfniskröfur starfsins eru á heimasíðu Fjarðabyggðar www.fjardabyggd.is – laus störf.
Sótt er um starfið á ráðningarvef Fjarðabyggðar. – starf.fjardabyggd.is