Rekstrarstjóri í Stafdal: Laust starf á skemmtilegu skíðasvæði

Laust er til umsóknar starf rekstrarstjóra á skíðasvæðinu í Stafdal.
Starfið felst í daglegri umsjón með rekstri skíðasvæðisins sem og starfsmannahaldi.
Rekstur svæðisins er á hendi Skíðafélagsins í Stafdal (SKÍS).

Rekstarstjóri sér m.a. um:

  • Opnun svæðisins og daglegan rekstur þess út veturinn sem og frágang á svæðinu.
  • Viðhald tækja og búnaðar.
  • Ráðningu annars starfsfólks ásamt verkstýringu þeirra.
  • Daglegt upplýsingaflæði í gegnum netmiðla og fjölmiðla.
  • Lyftuvörslu og önnur störf sem þarf að sinna.

Hæfniskröfur:

  • Færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og metnaður.
  • Reynsla af vinnu með vinnuvélar skilyrði, auk reynslu af viðgerðum og viðhaldi tækjabúnaðar.
  • Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af stjórnun.
  • Kunnátta á skíðum og í skyndihjálp er kostur.
    Geta og réttindi til troðslu á skíðasvæðinu kostur.

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Upplýsingar veitir Agnes Brá í síma 842-4365 eða á netfanginu [email protected]. Umsóknarfrestur er til og með 25. nóv. 2021.
Heimasíða: stafdalur.is

Secret Link