Staða deildarstjóra við leikskólann Lyngholt

Leikskólinn Lyngholt auglýsir eftir deildarstjórum. Leikskólinn er sex deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Lyngholt er Grænfána skóli og er unnið eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART. Um er að ræða 100 % stöður.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.

Nánari upplýsingar gefur Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 474-1257/860-3176 eða á [email protected] eða Gerður Ósk Oddsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 474-1257 eða á [email protected]

Umsóknir og umsóknarfrestur

Staðan er laus frá 1. maí 2021. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 15. apríl.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Sæktu um hér.

WordPress › Villa

There has been a critical error on this website.

Learn more about troubleshooting WordPress.