Spennandi störf við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Staða aðstoðarskólastjóra Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Laus er til umsóknar staða aðstoðarskólastjóra við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
skólaárið 2019-2020. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn
að taka þátt í að stjórna og leiða faglegt starf í skólanum. Skólinn er skipaður
góðu fagfólki og þar ríkir jákvæðni og góður starfsandi. Við Grunnskóla
Fáskrúðsfjarðar stunda um 100 nemendur nám. Skólinn er staðsettur í glæsilegu
húsnæði með frábærri aðstöðu.

Helstu verkefni:
• Umsjón með sérkennslu og kennslu innflytjendabarna
• Aðstoð við þróunar- og námskrárvinnu
• Aðstoð við daglega stjórnun skólans
Menntun og hæfniskröfur:
• Umsækjandi skal hafa starfsheitið grunnskólakennari
• Viðbótarmenntun og stjórnunarreynsla á grunnskólastigi er æskileg
• Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði
Stöður íþrótta- og umsjónarkennara við
Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Leitað er að kennara sem er reiðubúinn að ganga til liðs við samhentan hóp
starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum
skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg.
• Samskipta og samstarfshæfni.
• Frumkvæði og faglegur metnaður.
• Ábyrgð í starfi og stundvísi.
• Skipulagshæleikar.
• Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.
Við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur
metnað í góð samskipti og því gerum við kröfu til starfsmanna að þeir búi að
ríkulegri samskiptahæfni.
Frekari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu hans; www.fask.is.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Eygló Aðalsteinsdóttir í síma 867 – 6177 eða
á netfangið [email protected].

Umsóknarfrestur um störfin er til 20. maí.
Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu,
ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Secret Link