Snillingur óskast á Reyðarfjörð

Johan Rönning óskar eftir að ráða þjónustulundaðan, metnaðarfullan og harðduglegan söluráðgjafa í útibú fyirrtækisins á Reyðarfirði.

Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í góðu starfsumhverfi.

Vinnutími er 8-17 virka daga.

Johan Rönning var stofnað árið 1933 og er hluti af Fagkaup sem rekur jafnframt verslunar- og þjónustufyrirtækin Sindra, Vatn og veitur, S.Guðjónsson og Áltak.

Hjá Johan Rönning starfa um 160 starfsmenn í Reykjavík, Fjarðabyggð, Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Grundartanga, Selfossi og Akureyri.

Höfuðstöðvar félagsins eru að Klettagörðum 25 í Reykjavík.

Johan Rönning starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.

Við hvetjum konum jafnt sem karla til að sækja um.

Upplýsingar um starfið veitir Óskar Gústavsson í síma 520 0800 eða [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sala og þjónusta við viðskiptavini
  • Tilboðsgerð og ráðgjöf

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun og reynsla í iðngreinum er kostur
  • Mikil þjónustulund
  • Frumkvæði
  • Samskiptahæfni
  • Lausnamiðaður hugsunarháttur
  • Reynsla af sölustörfum er kostur

Hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Snillingur óskast á Reyðarfjörð | Johan Rönning | Fullt starf Reyðarfjörður | Alfreð (alfred.is)