Sjúkraliði – Seyðisfjörður – SUMARAFLEYSING 2020
Sjúkraliði – Seyðisfjörður – Hjúkrunarheimilið Fossahlíð – SUMARAFLEYSING 2020
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sjúkraliða í sumarafleysingar á hjúkrunarheimilið Fossahlíð á Seyðisfirði.
Starfshlutfall 100% eða samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg vinna sjúkraliða á hjúkrunarheimili.
Hæfnikröfur
Íslenskt starfsleyfi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði.
Íslenskukunnátta er áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.
Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.03.2020
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Guðveig Sigurðardóttir – [email protected] – 470-3060 & 868-7158
Stefanía Stefánsdóttir – [email protected] – 470-3058 & 846-5037
Seyðisfj. Fossahlíð
Suðurgata 8
710 Seyðisfjörður