
Sjúkraliði á heilsgæslu Djúpavogs/Breiðdalsvíkur – sumarafleysing
Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða sjúkraliða til starfa í heimahjúkrun heilsugæslu HSA sem sinnir Djúpavogi, Breiðdalsvík og nærsveitum. Um er að ræða sumarafleysingu, 40% starfshlutfall.
Helstu verkefni og ábyrgð
Heimahjúkrun heilsugæslu HSA sem sinnir Djúpavogi, Breiðdalsvík og nærsveitum.
Hæfnikröfur
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin, sem og almenn ökuréttindi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sjúkraliðafélags Íslands og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og stofnanasamningi HSA. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslur, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 40%
Umsóknarfrestur er til og með 01.03.2021
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Pétursdóttir – [email protected] – 470-1428 / 618-1904
Jónína Guðrún Óskarsdóttir – [email protected] – 470-3082 / 865-5737
Smelltu hér til að sækja um starfið
Deila