SÉRFRÆÐINGUR Á FJÖLSKYLDUSVIÐI
Erum við að leita að þér? Hefur þú brennandi áhuga á málefnum barna og fjölskyldna? Vilt þú taka þátt í starfi öflugs og samheldins hóps starfsmanna fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar? Þá skaltu lesa áfram!
Leitað er að sérfræðingi í 80% starf
Fjarðabyggð er öflugt, vaxandi samfélag sem leggur mikla áherslu á þjónustu í þágu farsældar barna og fjölskyldna sem grunn allrar velferðar og velferðarþjónustu.
Á Fjölskyldusviði Fjarðabyggðar er lögð áhersla á þverfaglega vinnu og teymisstarf. Starfsmenn vinna náið saman að úrlausn margþættra verkefna sem tengjast stuðningsþörfum ólíkra einstaklinga. Markmið alls starfs á sviðinu er að efla lífsgæði og hagsæld þjónustuþega.
Starfslýsing:
Starf sérfræðings heyrir undir stjórnanda félagsþjónustu og barnaverndar Fjarðabyggðar. Starfsmaðurinn starfar sem sérfræðingur í ráðgjöf og meðferð barna og fjölskyldna á Fjölskyldusviði. Mörg verkefni tengjast samþættingu farsældarþjónustu í þágu barna sem m.a snýr að leik-og grunnskólastarfi, frístundaþjónustu og annari þjónustu við börn sem hluti forvarnarteymisins Spretts.
Helstu verkefni:
- Sérfræðingur sinnir ráðgjöf við börn og fjölskyldur í Fjarðabyggð. Starfinu fylgir ábyrgð á velferð einstaklinga.
- Sérfræðingur starfar sem hluti forvarnarteymisins Spretts.
- Sérfræðingur sinnir hlutverki málstjóra eins og við á.
- Starfsmaður kemur að stefnumótun sem varðar þjónustu sveitarfélagsins við börn og fjölskyldur.
- Fagleg ábyrgð á veittri þjónustu.
- Faglegt mat og endurmat á þjónustuþörf.
- Ábyrgð á skráningu gagna í málakerfið ONECrm.
- Tryggja að stuðningur sé veittur í samræmi við lög og reglugerðir.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Fjarðabyggðar.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi á sviði félags-, heilbrigðisvísinda, eða sambærilegrar menntunar.
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er æskileg.
- Reynsla af ráðgjöf og meðferð er nauðsynleg.
- Reynsla af þverfaglegu starfi og teymisvinnu.
Starfslýsing sérfræðings á Fjölskyldusviði
Umsóknarfrestur er til og með 19.09.22
Allar nánari upplýsingar veitir Inga Rún Sigfúsdóttir stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar fjölskyldusviðs. [email protected] sími: : 4709000
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamning Íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Sótt er um starfið hér