Um er að ræða stuðning við fatlað fólk við allar athafnir daglegs lífs með því markmiði að það geti lifað eðlilegu lífi og tekið þátt í samfélaginu.
Starfið er 60%
Helstu verkefni:
- Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs inn á heimilum þess.
- Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum.
Hæfniskröfur:
Áhugi á málefnum fatlaðs fólks, rík þjónustulund, jákvæðni, þolinmæði, framtakssemi og samviskusemi.
Viðkomandi verður að hafa hreint sakavottorð og vera orðinn 18 ára.
Frekari upplýsingar veitir: Kristín Ella Guðm. Forstöðuþroskaþjálfi í síma 897-0916, eða á [email protected]
Umsóknareyðublöð eru að finna á: http://www.fjardabyggd.is/stjornsysla/vinnustadurinn/laus-storf/ og sendist í tölvupósti á: [email protected]
merkt Starf 2017
Umsóknarfrestur er til 28. október 2017.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Öllum umsóknum verður svarað.