Rekstrarstjóri/hægri hönd hótelstýru

Hótel Eyvindará (nágrenni Egilsstaða) auglýsir eftir rekstarstjóra. Um er að ræða tímabundið 6-7 mánaða starf (apríl – september).

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón og vinna við daglegan rekstur svo sem mannaforráð og vaktir, bókanir, móttaka gesta, þrif og fleira.
  • Vinna við sölu og markaðsmál.
  • Starfið er unnið í nánu samstarfi við eigendur/hótelstjórn.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Íslensku- og enskukunnátta
  • Stjórnunarhæfileikar nauðsynlegir
  • Menntun og reynsla í ferðaþjónustu mundi styrkja umsóknina
  • Hæfni í samskiptum
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Skipulagshæfileikar og þjóustulund nauðsynleg sem og góð tölvukunnátta

Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2022 og sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Rekstrarstjóri/hægri hönd hótelstýru | Hótel Eyvindará | Tímabundið Egilsstaðir | Alfreð (alfred.is)

 

 

Secret Link