
Rarik – vélvirki Seyðisfirði
RARIK ohf auglýsir eftir rafvirkja/vélvirkja til starfa á starfsstöð fyrirtækisins á
Seyðisfirði. Hér er um fjölbreytt starf að ræða í öflugum vinnuflokki sem vinnur við
dreifikerfi RARIK á Austurlandi. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðhald á dreifikerfi RARIK
- Eftirlit með tækjum og búnaði
- Viðgerðir
- Nýframkvæmdir
- Vinna samkvæmt öryggisreglum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í vélvirkjun eða rafvirkjun
- Öryggisvitund
- Almenn tölvukunnátta
- Drifkraftur og geta til að vinna sjálfstætt
- Bílpróf