Fluor – Rafmagnsverkfræðingur
Fluor leitar að kraftmiklum rafmagnsverkfræðingi í teymið til að stýra verkefnum fyrir Alcoa Fjarðaál á Reyðarfirði. Viðkomandi mun sinna verkefnum sem snúa að ráðgjöf um rafmagnsbúnað, viðhaldi og virkni hans, uppsetningu á búnaði og vali á birgjum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Skipuleggja og stýra verkefnum
- Greina og útfæra kröfulýsingar og leiðbeiningar fyrir raf- og stjórnbúnað
- Taka þátt í innkaupum fyrir verkefnin
- Halda utan um og vera í samskiptum við birgja, viðskiptavini og aðra verktaka
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólapróf í rafmagnsverkfræði eða tæknifræði. Meistaragráða er kostur
- Reynsla af verkfræðitengdri hönnun eða sambærilegum verkefnum
- Skipulagshæfni og drifkraftur
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Framúrskarandi enskukunnátta í ræðu og riti