Austurbrú óskar eftir öflugum verkefnastjóra

Austurbrú vinnur að hagsmunamálum íbúa á Austurlandi og veitir samræmda og þverfaglega þjónustu tengda atvinnulífi, menntun og menningu. Hjá Austurbrú starfa nú um 25 manns á sex starfsstöðvum á Austurlandi.

Óskað er eftir verkefnastjóra með reynslu af byggðaþróun, ráðgjöf og stefnumótun. Þekking á atvinnuþróun og nýsköpun er mikilvæg.

Helstu verkefni:

Stýring verkefna, framkvæmdar og þjálfunar
Stýring stefnumótunar og veiting ráðgjafar
Úrbætur og greiningar á þörfum, ferlum og innviðum
Stuðningur við og hvatning til nýsköpunar og þróunar á Austurlandi
Upplýsingamiðlun og skýrslugerð
Þátttaka í samfélagsverkefnum á Austurlandi

Hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í verkefnum
Haldbær fagreynsla og reynsla af verkefnastjórnun
Góð samstarfs- og samskiptafærni
Mikið frumkvæði og jákvætt hugarfar
Færni í sjálfstæðum vinnubrögðum
Skapandi og lausnamiðuð hugsun
Góð almenn rit- og tölvufærni
Þekking á staðháttum á Austurlandi er kostur
Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Aðsetur verkefnastjóra verður á starfsstöð Austurbrúar á Egilsstöðum eða Reyðarfirði.

Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Austurbrúar, Jóna Árný Þórðardóttir; [email protected]. Umsókn, kynningabréf og ferilskrá skal senda á netfangið [email protected]. Umsóknarfrestur er til og með 2. desember 2019.