Öryggisvörður á Austurlandi
Securitas á Austurlandi sækist eftir að ráða til sín öryggisverði vegna aukinna umsvifa. Viðkomandi kemur til með að sinna störfum öryggisvarðar í almennri öryggisgæslu. Lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.
Starfið felur í sér almenna þjónustu við viðskiptavin Securitas, viðbragð á gæslustað, ásamt því að tryggja almennt öryggi og eftirlit með hvers konar öryggisþáttum viðskiptavina okkar.
Ef þú…
- Býrð yfir góðri þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sýnir frumkvæði í starfi og getu til að vinna sjálfstætt
- Hefur metnað til að takast á við krefjandi verkefni
- Býrð yfir aga og ert áreiðanleg/ur í starfi
- Býrð yfir góðri íslenskukunnátta
… þá gætum við verið að leita af þér