Öryggis- og gæðastjóri

Launafl leitar að metnaðarfullum einstaklingi til að leiða öryggis-og gæðamál fyrirtækisins. Starfið felur einnig í sér umsjón með innri og ytri miðlum fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Öryggismál:
– Þróa og viðhalda öryggisstefnu fyrirtækisins
– Framfylgja lögum og reglum um vinnuvernd og öryggi
– Skipuleggja og framkvæma reglulegar öryggisúttektir og áhættugreiningar
– Fræða starfsfólk um öryggismál og viðbrögð við neyðartilvikum

Gæðamál: 
– Utanumhald gæðastjórnunarkerfa
– Þróa verklagsreglur í samráði við stjórnendur
– Framkvæma innri og ytri gæðagreiningar og úttektir

Menntunar- og hæfniskröfur

– Menntun sem nýtist í starfi
– Reynsla af öryggis- og gæðamálum er kostur
– Góð tölvukunnátta og færni í tæknimálum
– Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti. Pólska er kostur
– Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
– Leiðtoga- og samskiptahæfni

Launafl leggur áherslu á að vera fjölskylduvænn vinnustaður og stuðlar að jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsmannafélag Launafls sinnir virku starfi og fer t.d. erlendis annað hvert ár.

Secret Link