Neskaupstaður: aðstoð í eldhúsi Umdæmissjúkrahúss Austurlands
HSA óskar eftir að ráða starfsmann í eldhús Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Unnið er á vöktum og gott ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst. HSA er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 420 manns starfa á þrettán starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og byggir HSA þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Matseld, framreiðsla og frágangur á mat til sjúklinga, heimilisfólks og starfsfólks stofnunarinnar. Almenn aðstoð við matráð og önnur tilfallandi verkefni í eldhúsi.
Hæfniskröfur
- Góð íslenskukunnátta áskilin.
- Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót.
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
- Metnaður í starfi og stundvísi.
- Hæfni og vilji til að takast á við breytingar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.09.2021
Nánari upplýsingar veitir
Borghildur F. Kristjánsdóttir – [email protected] – 868-8725
Loftur Gíslason – [email protected]