N1 Egilsstöðum leitar að kraftmiklum og þjónustulunduðum liðsfélögum til framtíðarstarfa.
Vilt þú vinna á líflegum vinnustað? N1 Egilsstöðum leitar að kraftmiklum og þjónustulunduðum liðsfélögum til framtíðarstarfa. Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu.
Umsækjendur þurfa að vera liprir í samskiptum og eiga auðvelt með að vinna í hóp.
Helstu verkefni
• Almenn afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
• Önnur tilfallandi verkefni á stöðinni
Hæfniskröfur
• Samskiptafærni og þjónustulund
• 18 ára eða eldri
• Reynsla af störfum í verslun og þjónustu er kostur.
Áhugasamir sæki um á www.n1.is – merkt Egilsstaðir. Eldri umsóknir þarf að endurnýja.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Hólm Þórleifsdóttir í síma 440 1452 eða [email protected]
Við hvetjum bæði kyn til að sækja um auglýst störf hjá fyrirtækinu.