Minjasafn Austurlands á Egilsstöðum auglýsir eftir starfsmanni.

Viltu vinna á safni?
Minjasafn Austurlands á Egilsstöðum auglýsir eftir starfsmanni.

Helstu verkefni
• Safnkennsla og miðlun
• Safnvarsla og móttaka gesta
• Umsýsla safnkosts

Hæfniskröfur:
• Þekking og/eða áhugi á þjóðmenningu og sögu og menningu Austurlands er skilyrði.
• Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti er skilyrði.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði safnafræði, sagnfræði, þjóðfræði,
fornleifafræði, forvörslu eða kennslu er kostur.
• Reynsla af kennslu og/eða annarri vinnu með börnum er kostur.
• Reynsla af safnastarfi er kostur.
• Reynsla af miðlun og sýningarhaldi er kostur.
• Góð tölvukunnátta og þekking á samfélagsmiðlum er kostur.

Við leitum að jákvæðum, nákvæmum og skipulögðum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á
safnastarfi og á auðvelt með samskipti við alla aldurshópa. Starfið hentar jafnt konum sem körlum.

Starfshlutfall: 60-80%. Laun samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur: Til og með 30. apríl.

Nánari upplýsingar veitir Elsa Guðný Björgvinsdóttir, safnstjóri,
netfang: [email protected], sími: 471-1412.
Umsókn og ferilskrá sendist á [email protected]