Menntaskólinn á Egilsstöðum auglýsir eftir framhaldsskólakennara

Framhaldsskólakennarar – Menntaskólann á Egilsstöðum

Menntaskólinn á Egilsstöðum auglýsir eftir framhaldsskólakennara frá og með hausti 2020 í:

Stærðfræði, áfangar á 2.-4. hæfniþrepi, 50% starf.

Umsækjendur skulu hafa rétt til að nota starfsheitið kennari og vera með sérhæfingu til að kenna bóknámsgreinar á 2.-4. hæfniþrepi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla, auk almennrar hæfni á viðkomandi fræðasviði sem krafist er við námslok á stigi 1.2 samkvæmt viðmiðum um æðri menntun og prófgráður eins og stendur í lögum nr. 95 frá 1. júli 2019.

Við skólann er lögð áhersla á þróunarstörf í kennsluháttum, námsmati, leiðsagnarnámi og þverfaglegu samstarfi á grundvelli skólanámskrár. Starfsmenn skólans þurfa að vera sjálfstæðir í vinnubrögðum og búa yfir góðri samskiptahæfni, ríkri þjónustulund, frjóu frumkvæði og vilja til þróunar í starfi og starfsháttum.

Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um menntun, starfsréttindi sem kennari, fyrri störf og meðmælendur. Umsóknin þarf ekki að vera á sérstökum eyðublöðum en afrit prófskírteina og réttinda skulu fylgja.
Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðuneytis og Kennarasambands Íslands og stofnanasamningi ME.

Umsóknarfrestur um ofangreinda stöðu rennur út 11. mars n.k. og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.
Ráðið er í starfið frá og með 1. ágúst n.k.
Nánari upplýsingar veitir Árni Ólason, skólameistari, í síma 471-2507.

Umsóknir skal senda á netfangið [email protected] eða eftirfarandi heimilisfang:
Menntaskólinn á Egilsstöðum
b/t skólameistara,
Tjarnarbraut 25,
700 Egilsstaðir.
Skólameistari

Menntaskólinn á Egilsstöðum
www.me.is
Tjarnarbraut 25, 700 Egilsstaðir
Sími 471-2500