Lífeindafræðingur
Lífeindafræðingur – Rannsóknardeild Heilbrigðisstofnunar Austurlands
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða lífeindafræðing á rannsóknardeild stofnunarinnar. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Rannsóknardeild HSA starfrækir rannsóknarstofur á Umdæmissjúkrahúsi Austurlands og á Heilsugæslustöðinni Egilsstöðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rannsóknardeild HSA sinnir öllu starfssvæði HSA frá Djúpavogi til Vopnafjarðar. Viðkomandi þarf að sinna bakvöktum skv. fyrirliggjandi bakvaktaplani.
Hæfnikröfur
Íslenskt starfsleyfi. Lögð er áhersla á faglegan metnað, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag lífeindafræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.01.2021
Nánari upplýsingar veitir
Emil Sigurjónsson – [email protected] – 470-3053 & 895-2488