Leikskólinn Bjarkatún, Djúpavogi auglýsir eftir deildarstjóra í 100% starf

Leikskólinn Bjarkatún, Djúpavogi auglýsir eftir deildarstjóra inn á Krummadeild í 100% starf frá 20. ágúst 2019.
Leikskólinn er tveggja deilda leikskóli þar sem eru 37 börn. Krummadeild er yngri barna deild með 1 – 2 ára gömlum börnum.
Hæfniskröfur eru eftirfarandi:
• Leikskólakennaramenntun
• Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum
• Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Góð íslenskukunnátta
Áhugasömum er bent á að skoða heimasíðu leikskólans www.bjarkatun.leikskolinn.is
Upplýsingar er hægt að nálgast hjá Guðrúnu S. Sigurðardóttur leikskólastjóra í síma 470-8720 eða í tölvupósti, [email protected]. Umsóknum ber að skila fyrir 1. maí 2019 í tölvupósti eða til leikskólastjóra Hammersminni 15B. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.