Leiðtogi framleiðsluteymis í kerskála

Leiðtogi framleiðsluteymis í kerskála.

Alcoa Fjarðaál leitar að jákvæðum og drífandi einstaklingi til að leiða framleiðsluteymi í kerskála, þar sem ál er framleitt allan sólarhringinn í 336 rafgreiningarkerum. Leiðtogi framleiðsluteymis gengur vaktir með teyminu sínu og hefur jafnframt þrjá fyrirliða sér til stuðnings. Leiðtogi fylgir eftir framleiðsluáætlunum, leiðir umbótavinnu, stuðlar að öryggi og sinnir mannauðsmálum.

Ábyrgð og verkefni

  • Leiðtogi vinnur að því að þróa teymi ólíkra einstaklinga með gildi Alcoa, heilindi, árangur, umhyggju og hugrekki að leiðarljósi. Áhersla er lögð á nýtingu styrkleika, jákvæð samskiptiog góðan starfsanda.
  • Leiðtogi hefur viðveru á framleiðslugólfi hluta af vinnutíma sínum og fylgir því eftir að teymið framleiði samkvæmt áætlunum og uppfylli þarfir viðskiptavina á öruggan, heilbrigðan og umhverfisvænan hátt.
  • Leiðtogi sinnir mannauðsmálum teymisins og gegnir lykilhlutverki í helgun starfsmanna með því að miðla upplýsingum, skýra væntingar, tryggja þjálfun og veita stuðning, hvatingu og endurgjöf.
  • Með stöðlun besta verklags og stöðugu umbótastarfi leggur teymið sitt af mörkum til árangurs og þróunar framleiðsluferlisins.

Menntun, reynsla og hæfni

  • Æskilegt er að leiðtogi hafi menntun sem nýtist í starfi og fimm ára reynslu af framleiðslu eða stjórnun.
  • Mikið reynir á samskiptahæfni. Leiðtogi þarf að geta stutt og hvatt starfsmenn, en um leið tekið á erfiðum málum af festu.
  • Leiðtogi þarf að hafa frumkvæði í starfi, vilja til að vinna að stöðugum úrbótum og metnað til að ná árangri. Gerð er krafa um sterka öryggis- og gæðavitund.
  • Leiðtogastarf krefst nákvæmni og skipulagshæfileika. Leiðtogi þarf að hafa góða tölvukunnáttu og gott vald á íslensku og ensku.

Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 28. febrúar.

Fríðindi í starfi

  • Íþrótta og meðferðarstyrkir
  • Mötuneyti
  • Rútuferðir frá helstu byggðarkjörnum
Secret Link