Laust starf slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns í Fjarðabyggð

Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu við sjúkraflutninga og slökkvistörf. Við leitum að áhugasömum aðila sem leggur metnað í faglegt og gott starf þar sem traust og samheldni ríkir.

Helstu verkefni:

  • Slökkvistörf
  • Sjúkraflutningar
  • Þátttaka í æfingum og þjálfun annarra viðbragðsaðila.
  • Umhirðu húss, tækja og búnaðar og annarri þeirri vinnu er fellur til á slökkvistöð.

Menntunar- og/eða hæfniskröfur:

  • Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði 8.gr. reglugerðar nr.792/2001, m.a.
  • Hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
  • Hafa að lokinni reynsluráðningu aukin ökuréttindi til að stjórna vörubifreið.
  • Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun (stúdentspróf) og reynslu.

Að auki þurfa umsækjendur að:

  • Standast læknisskoðun og þrekpróf.
  • Hafa jákvætt hugarfar.
  • Hafa framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að hafa á sér gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
  • Menntun og/eða reynsla af starfi slökkviliðs- og/eða sjúkraflutningamanna er kostur
Secret Link