Laus störf við Djúpavogsskóla
Í Djúpavogsskóla eru laus til umsóknar spennandi störf sem tengjast bæði kennslu og almennum stuðningi við nemendur.
Djúpavogsskóli er samrekinn grunn- og tónlistarskóli með um 80 nemendur.
Skólinn vinnur í takt við hæglætishugmyndir Cittaslow og leggur mikla áherslu á velferð og vellíðan. Starfsandinn er góður og tækifærin eru mörg fyrir skapandi og jákvæða einstaklinga. Skólinn er í mikilli þróun með áherslu á samþættingu í öllum list-og verkgreinum, úti- og grenndarnámi, núvitund, sjálfbærni og teymisvinnu. Við leitum að jákvæðum einstaklingum sem eru tilbúin að taka þátt í þróunarstarfi og starfa eftir stefnu og framtíðarsýn skólans og geta hafið störf sem fyrst. Um framtíðarstörf er að ræða og starfshlutföll geta verið samkomulag við skólastjóra sem er næsti yfirmaður.
Eftirtalin störf eru auglýst:
- Umsjónarkennarar á unglingastigi.
- Kennarar í öllum teymum.
- Heimilisfræði í öllum teymum.
- Íþróttir og sund í öllum teymum.
Einnig er auglýst eftir:
- Stuðningsfulltrúum á öllum stigum.
Djúpavogsskóli er teymiskennsluskóli sem leggur mikla áherslu á skapandi nám og fjölbreyttar kennsluaðferðir. Við leitumst við að efla og samþætta allar námsgreinar og leitum eftir öflugum og áhugasömum einstaklingum sem áhuga hafa á að taka þátt í að byggja upp fjölbreytt skólastarf, þannig að styrkleikar hvers og eins fái að njóta sín.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu nemenda samkvæmt markmiðum aðalnámskrár grunnskóla í samráði við skólastjóra og aðra kennara með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
- Fylgjast með velferð nemenda, hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar.
- Taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags.
- Aðstoða nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt námskrá.
- Leytast við að styðja við nemendur í félagslegum samskiptum í skólastarfinu.
- Aðstoða nemendur við daglegar athafnir.
- Kennsluréttindi er skilyrði.
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
- Mikil samskipta- og samstarfshæfni.
- Faglegur metnaður og lausnamiðuð hugsun.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Áhugi á að starfa í teymi.
- Gott vald á íslenskri tungu og áhugi á að nýta upplýsingatækni í kennslu.