Launafl ehf (LA) auglýsir eftir verkefna- og gæðastjóra

Verkefna- og gæðastjóri Launafl ehf (LA) auglýsir eftir verkefna- og gæðastjóra til að starfa í tæknideild LA. Um er að ræða fullt starf. Launafl ehf leggur mikið upp úr öryggi starfsmanna sinna og er mikilvægt að umsækjandi tileinki sér öryggisvitund fyrirtækisins.

Helstu verkefni (starfssvið):

• Verkefnastjórnun
• Umsjón og ábyrgð á gæðakerfi
• Ýmis hönnun í Autocad Inventor

Hæfnis- og menntunarkröfur:

• B.sc. próf í vélaverkfræði eða véltæknifræði
• Þekking og reynsla við verkefnastýringu og hönnun
• Að minnsta kosti 3ja ára starfsreynsla
• Þekking og reynsla á Autocad og Inventor
• Góðir samskiptahæfileikar
• Gerð er krafa um mikla greiningarhæfni, öguð og skipulögð vinnubrögð
• Hafa gott vald á íslensku og ensku í tali og riti auk kunnáttu í einu Norðurlandamáli.
• Eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi og jafnframt búa yfir þeim sveigjanleika og festu sem nauðsynleg er til að ná árangri í starfi.

Umsóknarfrestur er til og með 11. október 2017.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en um næstu áramót eða eftir nánara samkomulagi.

Umsóknir skulu sendar á netfang [email protected] eða [email protected].

Launafl ehf. – www.launafl.is – sími 414-9400.

Secret Link