Lagerstarfsmaður – Rubix Reyðarfirði

Rubix leitar eftir öflugum lagarstarfsmanni sem starfar á starfsstöð Rubix innan athafnasvæðis Alcoa á Reyðarfirði.

RUBIX á Íslandi er með tvær starfsstöðvar, eina á Reyðarfirði sem þjónustar starfsemi Alcoa Fjarðaáls með sérsniðna og víðtæka þjónustu á sviði vöruhúsa og aðfanga vegna varahluta og rekstrarvara.

Hin starfsstöðin i í Kópavogi að Dalvegi 32a, þar sem er til húsa verslun, skrifstofa, vöruhús og verkstæði fyrir alla starfsemi á landinu. Á Íslandi starfa í dag um 40 manns, fjölbreyttur hópur sérfræðinga hver á sínu sviði. Auk sölu á varahlutum og rekstarvöru er boðið upp á ýmiskonar þjónustu á Dalvegi eins og smíði á vökva- og loftslöngum, samsetningu á stýriskápum fyrir vökvakerfi og merkingar á vinnufatnaði svo eitthvað sé nefnt. Á Dalveginum er verslun eins og áður segir og þar er til sýnis hluti af því vöruframboði sem RUBIX er að bjóða upp á á hverjum tíma.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Afgreiðsla og móttaka á vörum
  • Skráningu í birgðakerfi vöruhúss
  • Önnur tilfallandi störf í vöruhúsinu

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Almenn tölvukunnátta, þekking á Navision er kostur
  • Bílpróf skilyrði
  • Lyftarapróf kostur en ekki skilyrði
  • Hreint sakavottorð skilyrði
  • Búseta á Austurlandi skilyrði

Þessi staða er staðsett á starfsstöð Rubix á Reyðarfirði, á athafnasvæði Alcoa

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst

Umsóknarfrestur er til og með 23. nóvember og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Lagerstarfsmaður – Rubix Reyðarfirði | Rubix Ísland ehf | Fullt starf Reyðarfjörður | Alfreð (alfred.is)

Secret Link