Læknastöður – Heilbrigðisstofnun Austurlands – Austurland

LÆKNASTÖÐUR Á HEILBRIGÐISSTOFNUN AUSTURLANDS

Þrjár stöður lækna í heilsugæslu HSA
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir þremur læknum til starfa. Einum með aðalstarfsstöð í Fjarðabyggð, öðrum á Egilsstöðum og hinum þriðja á Djúpavogi.
Stöðurnar veitast frá 01.01. 2018 eða eftir nánara samkomulagi og eru 100%, nema um annað sé samið.

Austurland er stórt og dreifbýlt með um 11 þúsund íbúa, þar sem HSA sinnir heilsugæslu á 11 starfsstöðvum, rekur Umdæmissjúkrahús Austurlands í Neskaupstað og þrjár hjúkrunardeildir. Auk lækna í heilsugæslu, skurðlæknis og svæfingalæknis á sjúkrahúsinu starfar húðsjúkdómalæknir hjá HSA og þar er reglulega veitt ýmiss konar önnur sérfræðiþjónusta. HSA kemur að kennslu læknanema, kandídata og sérfræðinema í heimilislækningum. Lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu lækna með öðru fagfólki, þ.á.m. hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, lyfjafræðingi, sjúkraþjálfurum og iðjuþjálfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
– Almennar lækningar.
– Heilsuvernd.
– Vaktþjónusta.
– Kennsla nema.
– Þátttaka í vísindastarfi, gæða- og umbótaverkefnum.

Hæfnikröfur

– Sérfræðimenntun í heimilislækningum er æskileg.
– Sjálfstæði í starfi, skipuleg og öguð vinnubrögð og faglegur metnaður.
– Reynsla af og vilji til þverfaglegrar samvinnu (teymisvinnu).
– Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, jákvæðni og sveigjanleiki.
– Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki teljast uppfylla framangreind skilyrði.
– Íslenskukunnátta áskilin.

Umsóknarfrestur er til 16.10. 2017.

Kjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands, en áhugasamir eru hvattir til að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um kjör.

Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem fást á vef Embættis landlæknis; www.landlaeknir.is, til HSA, mannauðsstjóra, Lagarási 22, 700 Egilsstöðum eða rafrænt á [email protected].

Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar um nám, starfsreynslu, kennslu og vísindastörf, ásamt afriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað. Mat HSA byggist á innsendum umsóknargögnum. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

Nánari upplýsingar veita: Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri lækninga, s. 470-3052 og 860-6830, netf. [email protected], Emil Sigurjónsson, mannauðsstjóri, s. 470-3053 og 895-2488, netf. [email protected]og Guðjón Hauksson, forstjóri HSA, s. 470-3051, 470-1437 og 774-5030, netf. [email protected].

www.hsa.is 

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Secret Link