KRABBAMEINSFÉLAG ÍSLANDS AUGLÝSIR
KRABBAMEINSFÉLAG ÍSLANDS AUGLÝSIR
Í nýtt starf á Austurlandi / Austfjörðum leitum við að: heilbrigðisstarfsmanni í 80-100% starf.
Um er að ræða nýtt starf við ráðgjöf og stuðning, fræðslu og forvarnir gegn krabbameinum sem unnið verður í nánu samstarfi við nærsamfélagið, Krabbameinsfélögin á svæðinu og starfsmenn Krabbameinsfélagsins í Reykjavík. Um er að ræða mjög spennandi starf sem býður upp á mikil tækifæri. Í starfinu er gerð mjög rík krafa um frumkvæði og sjálfstæði í starfi, góða samskiptafærni, mikinn sveigjanleika, þjónustulund, faglegan metnað og reynslu í að tjá sig í ræðu og riti. Gott vald á ensku og þekking á Norðurlandamáli er kostur. Reynsla af þjónustu við fólk með krabbamein er mikill kostur. Starfið er tilraunaverkefni til eins árs með möguleika á framlengingu ef vel gengur.
Umsóknir um bæði störfin, ásamt náms- og starfsferilskrá og starfsleyfum, skal senda Sigrúnu Lillie Magnúsdóttur forstöðukonu Ráðgjafarþjónustunnar, á netfangið [email protected] , í síðasta lagi 9. febrúar næstkomandi. Sigrún veitir einnig nánari upplýsingar.
Auglýsingin birtist í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu laugardaginn 25. janúar