Kennari við Grunnskóla Reyðarfjarðar

Laus er til umsóknar staða kennara við Grunnskóla Reyðarfjarðar. Leitað er að metnaðarfullum og skapandi einstaklingi sem er tilbúnn að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks.  Skólinn er skipaður góðu fagfólki og þar ríkir jákvæðni og góður starfsandi.

Við Grunnskóla Reyðarfjarðar stunda um 200 nemendur nám. Skólinn er staðsettur í glæsilegu húsnæði þar sem einnig eru til húsa bókasafn staðarins og tónlistarskóli. Leitað er eftir kennara sem getur leyst forföll fram að vori með áframhaldandi ráðningu í huga.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg
  • Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
  • Samskipta og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.
Secret Link