Kennari óskast við Verkmenntaskóla Austurlands

Kennari óskast við Verkmenntaskóla Austurlands

Fyrir skólaárið 2020 – 2021 óskar skólinn eftir kennurum í eftirfarandi faggrein
• Kennsla á sjúkraliðabraut: 100% starfshlutfall

Umsækjendur þurfa að hafa leyfi til að starfa við hjúkrun á Íslandi og leyfisbréf sem kveður á um rétt til að nota starfsheitið kennari sbr. lög nr. 95/2019.

Leitað er eftir skipulögðum einstaklingi með góða samskiptahæfni, brennandi áhuga á skólastarfi og löngun til að vinna með ungu fólki. Mikilvægt er að geta sýnt frumkvæði í starfi og hafa góða þekkingu á ólíkum kennsluaðferðum. Kennslureynsla er æskileg. Góð tölvukunnátta er mikilvæg. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf.

Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2020.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra og stofnanasamningi VA.

Umsóknir ásamt greinargerð um menntun og fyrri störf berist á tölvupóstfangið [email protected] fyrir 15. maí 2020.

Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöðum. Mikilvægt er að tilgreina meðmælendur í umsókninni. Afriti af prófskírteinum skal skila með umsókn.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar veitir skólameistari, [email protected].

Á heimasíðu skólans, www.va.is, eru upplýsingar um skólann og starfsemi hans.

Skólameistari

Secret Link