KENNARASTÖÐUR VIÐ GRUNNSKÓLA REYÐARFJARÐAR

Grunnskóli Reyðarfjarðar auglýsir eftirtaldar kennarastöður lausar til umsóknar fyrir skólaárið 2022 – 2023.

  • Raungreinar
  • Enska
  • Textílmennt
  • Myndmennt
  • Heimilisfræði
  • Almenn bekkjarkennsla á yngsta stigi – umsjónarkennari

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg.
  • Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
  • Samskipta og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.

Starfslýsing grunnskólakennara.pdf

Starfslýsing umsjónarkennara.pd

Í skólanum eru um 200 börn í 1. – 10. bekk. Kennt er í anda Byrjendalæsis og Orði of orði og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti.  Leitað er að kennurum sem eru reiðubúnir til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.

Skólastarf Grunnskóla Reyðarfjarðar miðast að því að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum með áherslu á list- og verkgreinar. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.grunnrey.is

Reyðarfjörður er í hjarta Fjarðabyggðar þar sem góðar samgöngur liggja til allra átta. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingamöguleika.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til og með 29. maí nk.

Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um störfin.

Nánari upplýsingar veita Ásta Ásgeirsdóttir skólastjóri, [email protected] og Guðlaug Árnadóttir aðstoðarskólastjóri, [email protected], einnig í síma 470-9200.

Sótt erum stöðurnar á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér.