Fellabær

Kennarastöður við Fellaskóla

Fellaskóli í Múlaþingi auglýsir eftir kennurum fyrir næsta skólaár.

Fellaskóli er 100 barna grunnskóli. Þar er starfsandinn góður og mörg tækifæri fyrir jákvæða, samstarfsfúsa og skapandi einstaklinga. Skólinn er í þróun með áherslur á teymisvinnu, útinám og lotubundið kennsluskipulag.

Fyrir skólaárið 2021 – 2022 eru auglýst eftirfarandi störf við skólann:

  • Heimilisfræðikennara.
  • Myndmenntakennara.
  • Íþróttakennara.
  • Umsjónarkennara á yngsta stig með reynslu eða nám í aðferðum Byrjendalæsi.
  • Kennara í unglingastigsteymi.
  • Sérkennslustjóra.

Flest þessi störf eru hlutastörf en til greina kemur að blanda störfum allt eftir hæfni og reynslu umsækjanda.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu nemenda samkvæmt markmiðum aðalnámskrár grunnskóla í samráði við skólastjóra og aðra kennara með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
  • Fylgjast með velferð nemenda og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar.
  • Taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitafélags.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennsluréttindi.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
  • Mikil samskipta- og samstarfshæfni.
  • Faglegur metnaður.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Áhugi á að starfa með öðrum.
  • Gott vald á íslenskri tungu í ræðu og riti.
Secret Link