Íþróttakennari

Egilsstaðaskóli óskar eftir að ráða íþróttakennara í 80 – 100% starf. Þarf helst að geta kennt bæði sund og íþróttir.

Einkunnarorð skólans eru gleði, virðing og metnaður. Lög er áhersla á einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu og þverfaglegt samstarf. Skólinn er að innleiða hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar og Leiðsagnarnáms.

Ráðið er í stöðuna frá og með 1. ágúst 2024.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu nemenda samkvæmt markmiðum aðalnámskrár grunnskóla í samráði skólastjóra og aðra kennara með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
  • Fylgjast með velferð nemenda, hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar.
  • Taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu (skal fylgja umsókn)
  • Reynsla af íþrótta og sundkennslu æskileg
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Skipulagshæfni
  • Góð íslenskukunnátta
Secret Link