Isavia óskar eftir starfsfólki til sumarafleysinga

Isavia óskar eftir starfsfólki til sumarafleysinga við flugvallarþjónustu og á vélaverkstæði Egilsstaðaflugvallar. Helstu verkefni eru björgunar- og slökkviþjónusta, viðhald flugvallar
og umhverfis hans sem og viðhald á tækjum.

Umsækjendur þurfa að standast læknisskoðun og þolpróf.
Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Harðarson
umdæmisstjóri, [email protected].
Starfsstöð: Egilsstaðir
Hæfniskröfur
• Meirapróf er skilyrði
• Reynsla af slökkvistörfum og vinnuvélapróf er kostur
• Iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur
• Góð íslensku- og enskukunnátta

Isavia innanlands ehf. er dótturfyrirtæki Isavia sem annast rekstur allra innanlandsflugvalla og fellur starfið því undir starfsemi þess.

Vegna kröfu reglugerðar um flugvernd þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna bakgrunnsskoðunar lögreglu og vera með hreint sakavottorð. Nánari upplýsingar er að finna á isavia.is.
Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem allt hefur það að markmiði að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra sem fara um flugvelli félagsins og íslenska flugstjórnarsvæðið. Isavia ber Jafnlaunamerkið með stolti enda er það staðföst trú okkar að launaákvarðanir skuli ávallt byggja á faglegum og málefnalegum rökum.

UMSÓKNIR: ISAVIA.IS/ATVINNA